Mínar síður og Félagakerfi
Persónuverndarstefna
1. PERSÓNUVERNDARSTEFNA
Félagakerfi leggur mikið upp úr því að tryggja öryggi persónuupplýsinga félagsmanna.
Félagakerfi sér til þess að farið sé með allar persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/2000 um persónuvernd og úrvinnslu persónuupplýsinga.
Stefna Félagakerfi er að geyma og vinna með eins lítið af persónugreinanlegum upplýsingum og mögulegt er til að geta veitt þá þjónustu sem félaginu ber að veita viðskiptavinum.
Félagakerfi ábyrgist að nýta sér ekki upplýsingar um viðskiptavini á óábyrgan, óöruggan eða ólöglegan hátt.
Allar upplýsingar sem viðskiptavinir Félagakerfa láta félaginu í té eða sem Félagakerfi sækir með þeirra leyfi til þriðja aðila eru eingöngu sóttar í þeim tilgangi að hægt sé að veita þeim þá þjónustu sem þeir eiga rétt á.
2. PERSÓNUUPPLÝSINGAR
Við notum persónuupplýsingar þínar ekki í neinum öðrum tilgangi en þeirra er aflað.
Við áskiljum okkur rétt til að deila persónuupplýsingum þínum með þriðju aðilum sem koma að tæknilegu viðhaldi eða greiðsluþjónustu (slíkir aðilar kallast héðan í frá einu nafni “þriðju aðilar”) að því marki sem nauðsynlegt er svo við getum innt þjónustuna af hendi. Við tryggjum að slíkir þriðju aðilar viðhafi fullan trúnað.
Félagsmenn viðskiptavina okkar (en ekki Félagakerfi) eiga sínar persónuupplýsingar og hafa einir aðgang að þeim ásamt starfsfólki Félagakerfa og viðeigandi stéttarfélags.
3. TÖLFRÆÐILEGAR SAMANTEKTIR
Félagakerfi áskilur sér rétt til að útbúa ópersónugreinanlegar tölfræðilegar samantektir og aðrar afleiddar upplýsingar sem án alls vafa eru ekki persónugreinanlegar og nota sér þær í starfi félagsins.
4. VEFHEGÐUN
Þegar notendur heimsækja vefsvæði Félagakerfa, www.felagakerfi.is, og Mínar síður, kann félagið að safna tæknilegum upplýsingum um notkun þeirra, t.d. um tegund vafra, hvaða vefsíður notendur heimsækja á felagakerfi.is, tímann sem notendur verja á vefnum o.s.frv. Þess konar upplýsingar eru eingöngu notaðar til að bæta upplifun notenda af þjónustunni, t.d. með því að bæta hönnun þjónustunnar eða láta notendur vita af hugsanlegum tæknilegum vandamálum í búnaði þeirra.
5. UPPLÝSINGAR UM ÞRIÐJA AÐILA
Félagakerfi mun ekki undir nokkrum kringumstæðum afhenda, selja eða leigja persónuupplýsingar viðskiptavina og félagsmanna þeirra til þriðja aðila nema félaginu sé það skylt samkvæmt lögum eða samkvæmt beiðni félagsmanns.
6. BÓKHALDSGÖGN
Bókhaldsgögn eru geymd í samræmi við lög og reglur um færslu bókhalds og varðveislu þess. Að þeim tíma liðnum er gögnunum eytt, upplýsingum á skilagreinum er þó ekki eytt ef við á.
7. TAKMÖRKUN ÁBYRGÐAR
Að því marki sem gildandi lög heimila, ber Félagakerfi enga skaðabótaábyrgð vegna atvika sem upp kunna að koma vegna þess hvernig þjónustan er notuð eða útveguð, nema ef hægt er að rekja slík atvik til vítaverðrar vanrækslu eða misferlis af ásetningi af hálfu Félagakerfa.
Félagakerfi ber enga ábyrgð á töfum sem verða á þjónustunni eða því að þjónustan virki ekki sem skyldi vegna óviðráðanlegra atvika (force majeure).
8. LÖG & LÖGSAGA
Þessi persónuverndarstefna fellur undir íslensk lög. Leysa skal úr ágreiningi sem kann að rísa eða í tengslum við persónuverndarstefnuna fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur ef ekki er hægt að leysa úr honum á annan hátt.
9. BREYTINGAR
Félagakerfi áskilur sér rétt til þess að breyta og uppfæra persónuverndarstefnu þessa hvenær sem er. Við látum vita af slíkum breytingum á heimasíðu Félagakerfa.
10. TENGILIÐSUPPLÝSINGAR
Ef þú óskar eftir nánari upplýsingum varðandi persónuverndarstefnu Félagakerfa skaltu hafa samband við okkur hér: Skrifstofa Félagakerfa, Síðumúla 27, 108 Reykjavík, Netfang: [email protected].
Félagakerfi leggur mikla áherslu á að tryggja öryggi þeirra persónuupplýsinga sem viðskiptavinir og félagsmenn þeirra treysta félaginu fyrir.
Samþykkt af stjórn Félagakerfa 1. október 2019
Uppfært: 8 Júní 2023